[12:50]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það er hárrétt hjá hv. þm., þetta eru meðaltalstölur sem ég fór með og það er líka rétt hjá honum að þetta kemur mjög þungt við þá einstaklinga sem t.d. hafa misst vinnu eða þar sem vinnuframlag hefur dregist saman. En það er hins vegar rangt hjá hv. þm. að segja að þetta hafi breyst í tíð núv. ríkisstjórnar vegna þess að skattar hafi færst yfir á almenning einfaldlega vegna þess að þær tölur sem ég er að fara með eru ráðstöfunartekjur. Það er búið að taka tillit til skattanna. Ég er að tala um kaupmátt ráðstöfunartekna sem eru kaupmáttur atvinnutekna að frádregnum sköttum. Það er búið að taka tillit til skattanna. Þannig að ég var nú ekki svo óheiðarlegur að taka ekki tillit til þess. Að sjálfsögðu er ég að tala um það fjármagn sem fólk hefur á milli handa eftir að búið er að greiða skatta, bæði beina og óbeina.