[14:09]
Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég er alveg sammála síðasta ræðumanni um það að stofnað var til greiðsluerfiðleikalána í húsbréfakerfinu vegna þess að það var orðinn langur biðtími í 86-kerfinu, tvö eða þrjú ár eins og hv. þm. nefndi, og fólk var að hengja sig hér í skammtímalánum. Þess vegna var farið út í það að opna fyrir greiðsluerfiðleikalán í húsbréfakerfinu og afföllin og vandræðin þar voru ekki síst því að kenna að við vorum að fjármagna samtímis um nokkuð langan tíma tvö kerfi, bæði 86-kerfið sem Framsfl. vildi ekki sleppa hendinni af sem tók langan tíma að fá samstöðu um að leggja af og síðan vorum við með húsbréfakerfið. Það segir sig sjálft að þegar við erum með tvö slík kerfi í gangi, annað eins og 86-kerfið, sem sogaði til sín mikið fjármagn beint úr ríkissjóði, og hins vegar húsbréfakerfið og síðan greiðsluerfiðleikalán að það olli þessum miklu afföllum sem voru mjög mikil og hafa leitt til vandræða hjá ýmsum íbúðareigendum og húsbyggjendum, það viðurkenni ég fúslega, en það á sér sínar skýringar.