[14:36]
Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar) :
Virðulegur forseti. Mig minnir að fyrir sjö árum síðan þegar ég tók við húsnæðismálunum sem félmrh. þá hafi ríkisframlagið inn í Byggingarsjóð ríkisins vegna 86-kerfisins verið á fjórða milljarð kr. Samt vorum við með biðlista upp á 2--3 ár. Það sjá náttúrlega allir í hendi sér að ef við hefðum haldið áfram með það kerfi þannig að það hefði verið eðlilegur biðtími hjá fólki þannig að unga fólkið hefði ekki þurft að bíða hér í 2--4 ár þá hefðum við þurft að margfalda þá upphæð. Ég er hrædd um að það hefði komið niður á einhverju öðru í velferðarkerfinu ef það hefði átt að skapa hér eðlilegan biðtíma í þessu kerfi. Og það var alveg rétt hjá hv. þm. að þarna var um sjálfvirk innstæðulaus loforð að ræða. Þess vegna varð að breyta þessu kerfi. Ég er alveg viss um að það mundu nú ekki margir vilja hverfa aftur til þess tíma þegar hið opinbera lánaði einu sinni aðeins 17% af íbúðarverðinu og fólk þurfti að taka meginhlutann af íbúðarverðinu að láni í bankakerfinu eða annars staðar á markaðnum.