[15:31]
Sturla Böðvarsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Mér sýnist nú þingmaðurinn leggjast í heldur undarlega vörn. Ég verð að segja alveg eins og er, virðulegu þingmenn. Ég ætla ekki að dæma um vilja eða innræti einstakra þingmanna hér, það er fjarri mér. En ég vil bara vekja athygli á því að hv. 9. þm. Reykv. hefur verið ráðherra í ríkisstjórnum oftar en einu sinni og hefur vafalaust haft tækifæri til þess að beita enn frekar en við þingmenn sem erum tiltölulega nýir áhrifum sínum til úrbóta í þessum efnum. Ég bið hann að minnast þess og hvet hann til þess að standa að sjálfsögðu með okkur í þeim tillögum sem eru til úrbóta. Vonandi stendur hann við þau orð sem hann hefur haft hér uppi um stuðning við m.a. úrbætur hvað varðar Atvinnuleysistryggingasjóðinn. En ég held að hann hafi haft hér fullstór orð um það hversu mikið vanti af fjármunum í Atvinnuleysistryggingasjóðinn. En að sjálfsögðu vonum við öll að til þess þurfi ekki að koma að greiða meira af atvinnuleysisbótum en gert er ráð fyrir í fjárlagafrv. því sem hér liggur fyrir.