Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
Hæstv. forseti. Auðvitað styð ég að uppsagnarfresturinn lengist. Mér finnst hins vegar alltaf þegar talað er um vinnustað sjómanna að hann sé einn og hinn sami, þ.e. sjórinn sjálfur, og skiptir þá litlu á hvaða skel menn hristast þar. En það er önnur saga. En hv. þm. svaraði ekki spurningu minni hvers vegna alltaf skal gera þennan mikla mun á yfirmönnum og undirmönnum. Hvaða ástæða er til þess að yfirmanni sé nauðsynlegra að halda einhverjum launum ef af einhverjum ástæðum þarf að segja upp fólki og af hverju þurfa yfirmenn þrisvar sinnum meira heldur en hásetinn? Mig langar að biðja hv. þm. að útskýra það fyrir mér.