[17:13]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Því miður hef ég ekki hugmynd um það hvar málið stendur. Það er nú svo að ég get ekki nákvæmlega sagt fyrir um það á hverjum tíma hvað er greitt úr ríkissjóði þó að menn haldi það kannski. Eins og kom fram í mínu máli hér um daginn þá hefur málið verið til skoðunar og það er ætlun okkar að greiða þetta samkvæmt dómnum miðað við það sem við teljum að ríkissjóður eigi að greiða og er að okkar áliti án deilu, þ.e. þegar ríkið bar ábyrgð á sjúkrahúsinu. Það er ríkislögmaður sem fer með þetta mál af hálfu ríkisins og hann verður auðvitað að gefa okkur ráð í þeim efnum og ég vissi ekki betur þá og veit ekki betur nú en þar sé verið að ganga frá þessu máli eins og ríkið telur að það sé rétt. Og það er verið að gera það í þessu fjáraukalagafrv. sem hér er til 1. umr. að afla heimildar og þegar 1. umr. lýkur, ef henni lýkur einhvern tíma, þá fer þetta mál til nefndar og í nefndinni geta hv. þm. sem þar sitja auðvitað kallað til sín þá embættismenn ríkisins sem þeir vilja til þess að fá upplýsingar um slík atriði sem hér eru gerð að umtalsefni.
Ég verð að segja að það er mjög erfitt fyrir ráðherra að þurfa að svara kannski fyrir smæstu atriði um það hvernig borgað er úr ríkissjóði vegna þess að það er verið að gefa almennt yfirlit við 1. umr. en í nefndinni getum við að sjálfsögðu farið ofan í hvert atriði fyrir sig. Þegar ég segi smæstu atriði, þá á ég ekki við þau sem endilega eru smæst í hugum fólks heldur þau sem ekki er kannski ætlast til að við ræðum hér við 1. umr. málsins því að það er þannig að við getum að sjálfsögðu ekki vitað alveg nákvæmlega hvar mál standa á hverjum tíma. Þessari spurningu var svarað í fyrri hluta 1. umr. þessa máls og nú hef ég reynt að svara henni aftur, en ég bið hv. þm. um það í nefndinni leita fyllstu upplýsinga um málið af því að það er rétti vettvangurinn.