[18:57]
Félagsmálaráðherra (Guðmundur Árni Stefánsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það þarf auðvitað ekki að fara í grafgötur með það að allar breytingar til hækkunar á vaxtastigi bankanna minnka ekki heldur þvert á móti auka þann vanda sem heimilin í landinu eiga í því að það er auðvitað staðreynd sem enginn um deilir að íslensk heimili eru allt of skuldsett og hafa raunar verið það um alllangan aldur en þróunin hefur því miður verið í öfuga átt. Á því kunna að vera skýringar sem raunar er um getið hér í frv. til lánsfjárlaga og birtist í aukinni eftirspurn eftir húsbréfum. Menn leiða getum að því án þess að geta fullyrt nokkuð um það að fólk leiti í einhverjum mæli til húsbréfanna með 5% vexti eða þar um til þess aftur að greiða niður lán annars staðar. Það er ekki óeðlilegt ályktun sem þar kemur fram. En ég tek undir með hv. þm. að það er auðvitað áhyggjuefni að bankarnir skuli fara í þessa átt en ekki til lækkunar vaxta þegar allt efnahagsumhverfið kallar raunar á það. Svo sannarlega þurfa heimilin á því að halda.