Lánsfjárlög 1995

18. fundur
Þriðjudaginn 25. október 1994, kl. 21:38:06 (751)

[21:38]
     Jón Kristjánsson (um fundarstjórn) :

    Virðulegi forseti. Það er alveg rétt að hæstv. ráðherrar hafa fengið tiltal hér um að þeir mæti ekki við umræður. Hæstv. fjmrh. hefur mætt, hefur setið hér vel og ég tek það fram. En það er munurinn á hæstv. ráðherrum og þeim hv. þm. sem hér um ræðir að hann er þó á leiðinni en ráðherrarnir hafa ekki látið sjá sig og við erum uppgefnir á að kalla í þá. En ég vona að hæstv. fjmrh. hafi biðlund vegna þess að þingmaðurinn hefur þó svarað kalli.