[21:45]
Jón Kristjánsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég lýsi ánægju minni með það ef þetta starf er komið á lokastig því að ég hef verið þeirrar skoðunar að ekki sé vansalaust að það séu skiptar skoðanir í þessu efni og þarna verði að ná niðurstöðu. Ég vil því leggja mitt af mörkum til þess að svo verði og hef reynt að tala í þá veru í fjárln. að niðurstaða komist í þetta mikilvæga mál. Það vildi ég láta koma fram við umræðuna.