Lánsfjárlög 1995

18. fundur
Þriðjudaginn 25. október 1994, kl. 23:24:07 (766)

[23:24]
     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég lýsti minni persónulegu skoðun áðan. Nei, ég get ekki efnt til samstarfs við ýmsa aðila í þinginu einfaldlega vegna þess að ég sit í ríkisstjórn og ég hef að sjálfsögðu samstarf við þá ráðherra sem þar eru og þann þingmeirihluta sem hér situr og mynda ekki öðruvísi samstarf. Ég vil hins vegar benda á það að málefni flugstöðvarinnar verður örugglega til umræðu næstu árin og áratugina og þá gefst tækifæri til þess að ræða þetta mál, þetta vandamál sem hleypur ekkert frá okkur á næstu árum.