Jóhann Ársælsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Hæstv. ráðherra sagði að það væri unnið að þessum tollamálum í Brussel og það væru góðar vonir um að það tækist að færa það til betri vegar. Þetta reyndist mjög erfitt í EES-samningunum og því miður tókst ekki að tryggja eðlilegan aðgang að þessum mörkuðum þar. Ég ætla að vona að það reynist betur í þetta skiptið. Ég tek undir þá skilgreiningu sem hæstv. ráðherra var hér með að vitanlega eigum við sjálfsagða kröfu á því að okkar aðstæður versni ekki við inngöngu annarra ríkja í Evrópubandalagið. Mér finnst það vera eðlileg framsetning á okkar stöðu í málinu.
Ég spurði um sölu yfir borðstokk með viðskipti við Rússa í huga. Ég tel að það eigi að skoða það vandlega að nota alla möguleika til að auka viðskiptin við Rússa. Það getur haft óbein áhrif eða bein á viðskiptin síðan með síldina við þá en ég tek það sérstaklega fram að þarna þurfum við að fara mjög varlega og það verður að fylgjast mjög gaumgæfilega með hvernig hætti þess viðskipti fara fram. Ég tel reyndar að það þurfi sérstaka aðila til að fylgjast með viðskiptum sem fara fram úti á sjó því það hefur illa
reynst hjá sumum öðrum þjóðum að versla með þessum hætti og sérstaklega við Rússa, af því höfum við fréttir.
Mér þykir aftur vont og ég er ekki sammála hæstv. ráðherra í framsetningu hans á því hvernig eigi að stjórna þessu. Ég ítreka það að ég tel að það sé eðlilegast að stjórna þessu þannig að frjáls aðgangur að veiðum til manneldis verður leyfður og hann komi síðan niður á næsta ári á veiðum til bræðslu.