[17:18]
Björn Bjarnason (andsvar) :
Herra forseti. Ég nefndi engar tímasetningar varðandi afstöðu mína til Evrópusambandsins þannig að tíminn er ekki aðalatriði þar heldur efni málsins og þeir hagsmunir sem þarf að gæta. Einnig vek ég athygli á því að Evrópusambandið mun breytast á næstu árum. Við vitum ekki hvers konar samtök það verður þegar ríkjaráðstefnunni er lokið og eins og hv. þm. Tómas Ingi Olrich benti á þá eru líka kraftar innan þess sem vilja að Evrópusambandið þróist í aðra átt en stefnan var tekin í Maastricht. Á ríkjaráðstefnunni kunna að koma fram sjónarmið sem breyta sambandinu á þann veg að það verði allt annars konar ríkjahópur sem starfar eftir allt öðrum reglum en við stöndum frammi fyrir núna. Ég nefni því engan tíma varðandi afstöðu mína til þessra mála heldur mun ég skoða efni málsins.