[15:46]
Egill Jónsson :
Virðulegi forseti. Ég hlýt að fagna auknum áhuga hér á Alþingi fyrir málefnum landbúnaðarins sem birtist greinilega í þessari umræðu. Ég vildi út af því sem hér hefur komið fram, sérstaklega í sambandi við það sem hv. málshefjandi sagði um búvörulögin, að kartöflubændur hefðu farið sérstaklega illa út úr þeim, taka fram að það var engin sérstök breyting gerð á búvörulögunum 1985. Það hafði áður gengið úrskurður um það að Grænmetisverslun landbúnaðarins hefði ekki einkaleyfi á sölu garðávaxta í landinu eða kartaflna í landinu, þess sem menn eru að sakna í þessari umræðu. En ég undirstrika að þessi ákvörðun lá fyrir áður en lögunum var breytt. Og fyrir þá sem sakna þess að sú skipan skuli ekki vera enn í gildi vil ég ráðleggja það alveg sérstaklega að hafa samband við Sölufélag garðyrkjumanna og Ágæti um það hvað skráð verð sé hjá þessum tveimur fyrirtækjum sem íslenskir bændur ráða að öllu leyti. Þar liggur fyrir hver þessi verðskráning er og hverjir það eru sem ráða því verði sem nú er í gildi. Og ég undirstrika og tek undir þau orð sem komu fram áðan hjá hv. þm. Páli Péturssyni um þessi efni.
Það er að sjálfsögðu ekki nýmæli, eins og hér hefur líka komið fram, að afkoma í garðyrkju sé erfið og menn hafa reyndar talað um það áður fyrr. Landbn. hefur farið yfir þau mál með garðyrkjubændum og það skulu vera mín síðustu orð hér, að það skal ekki standa á því að sú umræða fari fram á þessum vetri eins og hún hefur áður gert.