[16:54]
Margrét Frímannsdóttir :
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins koma því á framfæri að ég er með tölur um þennan vikurútflutning frá því gær. Þá var búið að flytja út héðan rúmlega 178 þús. tonn, þar af 75.215 tonn frá Jarðefnaiðnaði og Vikurvörur hafa flutt út 102.944 tonn og bæta því við það sem hæstv. ráðherra sagði í annars mjög góðu svari sínu, að Jarðefnaiðnaður sem starfað hefur í 14 ár hefur lagt heilmikla peninga í rannsóknarstarfsemi og m.a. í samstarfsverkefni við Garðyrkjuskóla ríkisins um notkun vikurs til gróðursetningar.