[13:39]
Kristín Ástgeirsdóttir :
Virðulegi forseti. Ég vil beina fyrirspurn til hæstv. fjmrh. Nú um mánaðamótin voru þeir sjúkraliðar sem vinna hjá ríkinu og eru á fyrir fram greiddum launum hýrudregnir þannig að þeir fengu borgaða 8 vinnudaga laun fyrir nóvembermánuð vegna þess að þeir hafa boðað verkfall sem hefst á miðnætti 10. nóvember. Jafnvel sjúkraliðar í fæðingar- og veikindaleyfi fengu ekki greidd full laun.
Í úrskurði fyrrv. fjmrh., Ólafs Ragnars Grímssonar, frá árinu 1989 þegar verkfall BHMR stóð yfir segir að greiða beri þeim full laun sem eru á undanþágum í fæðingarorlofi eða sjúkraleyfi. Í nýlegu bréfi eða bréfi sem sent var í gær frá fjmrn. segir, með leyfi forseta:
,,Vegna verkfallsins verða fyrir fram greidd mánaðarlaun sjúkraliða fyrir nóvembermánuð aðeins greidd fyrir 8 vinnudaga.``
Af þessu tilefni vil ég beina eftirfarandi spurningum til hæstv. fjmrh.:
1. Hefur ráðuneyti hans þar með fallið frá þeirri túlkun á greiðslu launa í vinnudeilum sem sett var fram árið 1989?
2. Telur hæstv. fjmrh. það vænlega leið í kjarasamningum að svipta fólk umsömdum launum þegar samningar standa yfir og enn er óljóst hvort verkfall hefst?
3. Væri ekki nær að gera launin upp eftir á í stað þess að kasta stríðshanskanum að sjúkraliðum með þessum hætti?