Endurnýjun starfsleyfis Kísiliðjunnar í Mývatnssveit

24. fundur
Miðvikudaginn 02. nóvember 1994, kl. 13:51:29 (1050)

[13:51]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegi forseti. Ég beini orðum mínum til hæstv. umhvrh. Sú saga hefur verið á kreiki og hefur fengið byr undir báða vængi að undanförnu að í umhvrn. sé til einhvers konar leynisamkomulag þess efnis að þegar núgildandi starfsleyfi Kísiliðjunnar í Mývatnssveit renni út verði það ekki endurnýjað og að þegar núgildandi starfsleyfi var gefið út hafi legið fyrir loforð umhvrh. þess efnis að sett yrði í lög að námaleyfið yrði ekki framlengt frá þeim tíma sem þá var ákveðið. Nú vil ég gefa hæstv. umhvrh. tækifæri til þess að kveða þennan draug niður í eitt skipti fyrir öll ef svo er að fyrir þessu sé enginn fótur.