Jarðalög

25. fundur
Fimmtudaginn 03. nóvember 1994, kl. 16:50:29 (1172)


[16:50]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (um fundarstjórn) :
    Herra forseti. Ég hygg ég sé nú að tala um úrskurð forseta. Ég ætla ekki að gera athugasemdir við úrskurð forseta en ég vil mælast til þess við forseta þingsins eftirleiðis ef málum er frestað að morgni að beiðni þingmanns að sá hinn sami þingmaður hafi þá tíma til þess eftir hádegi að vera við í þingsalnum og þá sé ekki beðið um það sömuleiðis að fresta málinu fyrir hans sök síðari hluta dagsins.