Rannsókn kjörbréfs

26. fundur
Mánudaginn 07. nóvember 1994, kl. 15:04:48 (1195)


[15:04]
     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 4. nóv. 1994:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda til setu á þingi Sameinuðu þjóðanna og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að þar sem 1. varaþingmaður Framsfl. í Vesturl., Sigurður Þórólfsson, getur ekki vegna sérstakra anna tekið sæti á Alþingi taki 2. varaþingmaður, Ragnar Þorgeirsson iðnrekstrarfræðingur, Rifi, sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegur forseti.
Ingibjörg Pálmadóttir, 2. þm. Vesturl.``


    Þá hefur einnig borist eftirfarandi bréf, dags. 2. nóv. 1994:
    ,,Vegna sérstakra anna sé ég mér ekki fært að taka sæti Ingibjargar Pálmadóttur, 2. þm. Vesturl., næstu tvær vikur sem 1. varaþingmaður Framsfl. í Vesturlandskjördæmi.
Virðingarfyllst, Sigurður Þórólfsson.``


    Landskjörstjórn hefur komið saman og gefið út kjörbréf handa Ragnari Þorgeirssyni. Forseti fór fram á við kjörbréfanefnd að hún héldi fund til að rannsaka það kjörbréf.