Olíumengun á sjó

27. fundur
Mánudaginn 07. nóvember 1994, kl. 17:52:54 (1265)


[17:52]
     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) :
    Herra forseti. Ég vil taka undir það sem hv. þingmenn segja. Það er ástæða til þess að fara gætilega í sambandi við olíuleka, mengunarhættu og annað því um líkt. En ég vek athygli á því sem ég sagði áður að það var ekki leitað eftir heimild Siglingamálastofnun ríkisins fyrir þessari siglingu. Svo einfalt er það mál.