Leigumálar og söluverð lóða og landa Reykjavíkurkaupstaðar

31. fundur
Miðvikudaginn 09. nóvember 1994, kl. 14:37:44 (1358)


[14:37]
     Félagsmálaráðherra (Guðmundur Árni Stefánsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 86 frá 16. des. 1943. Frv. þetta skýrir sig að öllu leyti sjálft og í þeirri greinargerð sem meðfylgjandi er. Þarna er um nauðsynlega breytingu að ræða til að taka af öll tvímæli varðandi réttarstöðu mála viðvíkjandi lögveði íbúðarlóða. Frv. er flutt að ósk borgarráðs Reykjavíkur. Ég tel ekki ástæðu til að fara frekari orðum um efni þess en legg til að að lokinni þessari umræðu verði því vísað til 2. umr. og hv. félmn.