[15:20]
Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) :
Herra forseti. Það sem ég hef af tilviljun heyrt af þessum umræðum hefur verið mjög forvitnilegt, sérstaklega með hvaða hætti hv. stjórnarandstæðingar leggja þessi mál fyrir. Í fyrsta lagi er það ekki rétt hjá hv. síðasta ræðumanni né hv. þingmönnum að það sé eitthvert einsdæmi að þingmenn setji fram tillögur þess efnis að það skuli athugað sérstaklega hvernig unnt sé að hraða byggingu og endurbótum vega í landsfjórðungi í einu eða tveimur kjördæmum eða þegar um mikil mannvirki er að ræða. Það er auðvitað mikil spurning hvernig eigi að leggja slíka áætlun fyrir. Það er alveg ljóst að það sem vakir fyrir hv. þm. Agli Jónssyni með hans tillöguflutningi er að reyna að skýra fyrir sjálfum sér og öðrum, með því að tæknivinnan vinnist og fyrir liggi skynsamlegar áætlanir, hvernig best og skynsamlegast sé að hraða nauðsynlegustu vegaframkvæmdunum á Austurlandi, hvernig unnt sé að tengja Austurland við Norðurland og Suðurland, svo ég tali nú um miðbikið. Það er ekki komið bundið slitlag sunnan jökla alveg. Það er eftir smáspölur enn. Hvernig unnt sé að ljúka því og hvernig unnt sé að ljúka því að leggja bundið slitlag á hringveginn til Austurlands og þar fram eftir götunum.
Auðvitað kostar þetta mikið fé. Ég heyrði í sjónvarpinu að hv. 4. þm. Norðurl. e., Steingrímur J. Sigfússon, fyrrv. samgrh., veittist mjög mikið að þessum vinnubrögðum. Nú liggur hér fyrir tillaga frá honum sjálfum þar sem hann leggur það til að Vegagerðinni verði sérstaklega falið að ljúka athugun á tengingu Austurlands og Norðurlands með öruggu vegasambandi allt árið um byggðir á Norðausturlandi og um Vopnafjörð með jarðgöng undir Hlíðarfjöllum. Ef við erum að tala og höfum það til viðmiðunar hvor sé raunhæfari, tillaga hv. þm. Egils Jónssonar eða hv. þm. Steingríms Sigfússonar, út frá því sjónarmiði hvort nægilegt fjármagn verði til í náinni framtíð til þess að standa við tillöguna, þá sjáum við undir eins að hv. þm. Egill Jónsson er með báða fæturna á jörðinni en þeir hv. þm. Steingrímur Sigfússon og Hjörleifur Guttormsson uppi í háloftunum. Og væri kannski fróðlegt að fá upplýsingar um það ef hv. þm. Norðurl. e., fyrrv. samgrh., er orðinn þeirrar skoðunar nú að fullbúinn vegur milli Norður- og Austurlands eigi ekki einungis að bíða þess að það takist að vega Norður-Þingeyjasýslu eins og hún leggur sig, heldur eigum við líka þar ofan í kaupið að velta því fyrir okkur hvenær röðin komi að jarðgöngum milli Vopnafjarðar og Jökulsárhlíðar í hans huga. Er hv. þm. með þeirri tillögu sem hér liggur fyrir að lýsa því yfir og er hv. þm. Hjörleifur Guttormsson að lýsa því yfir að það sé þeirra skoðun að jarðgöng til Seyðisfjarðar og Neskaupstaðar um Mjóafjörð, eins og jarðganganefndin varð sammála um, sé ekki sá kostur sem þessir tveir þingmenn vilja? Eru þeir með þessum tillöguflutningi sínum að segja að þeir vilji taka það fram yfir að leggja jarðgöng á milli Vopnafjarðar og Jökulsárhlíðar? Ef þessir tveir hv. þingmenn eru ekki að gera það þá eru þeir í þykjustunni með sínum tillöguflutningi því enginn leggur trúnað á það að svo langt eigi sómasamlegt vegasamband á milli Norðausturlands og Austurlands að bíða að lokið verði í fyrsta lagi jarðgangagerð til Seyðisfjarðar um Mjóafjörð og síðan eigi að taka til við það þar á eftir að gera jarðgöng milli Vopnafjarðar og Jökulsárhlíðar. Það er þess vegna augljóst mál að þessir hv. þingmenn eru með þessum tillöguflutningi að leggja það inn í samgöngumálin sem þeir vilja ekki standa við, sem þeir munu ekki einungis vera reiðubúnir að standa við í orði kveðnu, sem hv. þm. Steingrímur Sigfússon mun ekki lýsa yfir hér á eftir, hann hefur kvatt sér hljóðs. Hann mun ekki lýsa því yfir hér á eftir er ég sannfærður um. Ég get auðvitað ekki fullyrt um óorðna hluti. Það er erfitt að spá, einkum um fortíðina, sagði einu sinni hagfræðingur. En nú verður fróðlegt að sjá þennan fyrrv. samgrh. og hv. þm. Norðurl. e. koma hingað upp í stólinn og segja við okkur hérna: Það er skoðun mín að jarðgöng milli Vopnafjarðar og Jökulsárhlíðar eigi að vera á undan jarðgöngunum til Seyðisfjarðar. Það er það sem hann er að segja við Norðlendinga með þessari tillögu. Ætlar hann að segja það við Austfirðinga að hann vilji láta það sitja fyrir að jarðgöngin komi á milli Vopnafjarðar og Jökulsárhlíðar eða á Hjörleifur Guttormsson að segja fyrir austan að Seyðisfjörðurinn eigi að koma á undan? Hver er skoðun hv. þm.? Hann var að tala um að það vantaði stefnu í samgöngumálum. Hver er skoðun þessa hv. þm. sem hefur mjög talað um það að hann sé áhugamaður um jarðgöng? Það kemur hér fram. Það væri nú fróðlegt að fá upplýsingar um það hver er skoðun hans nú. (Gripið fram í.) Það er verst hvað heyrist illa í þingmanninum þó að hann sé að grípa fram í, ég nem ekki orðin. Vill hv. þm. endurtaka það?
( Forseti (SalÞ): Nei. Það má ekki endurtaka.)
Hæstv. forseti truflaði nú þannig að ég heyrði ekki, þannig að það er nú svo. ( Gripið fram í: Tillögu Egils.)
Síðan ætla ég að víkja að tillögu hv. . . . (Gripið fram í.) Nú er það svo, hæstv. forseti, að jafnvel í frammíköllum þóttist ég vita að það ætti að segja hv. þm.
Nú er það svo um tillögu Egils, eins og ég sagði áður, að hún lýsir miklum áhuga fyrir því annars vegar að bæta samgöngur milli Austurlands og Norðurlands sem hann hefur verið áhugamaður um lengi og ég get minnt á tillöguflutning hans frá fyrri árum um þau efni. Þannig að í því felst engin uppgerð þó að hann vilji ýta á eftir þeim málum hér á Alþingi, í því felst engin uppgerð. En samtímis þessu liggur hér fyrir áhugi hans fyrir því, sem er ekki bundinn við Sjálfstfl. á Austurlandi, að ljúka hringveginum, að við einsetjum okkur hvenær og hvernig við viljum ná því fram að bundið slitlag verði komið á hringveginn.
Það eru núna 20 ár síðan sá atburður gerðist að brúin yfir Skeiðarársand var vígð. Það má þess vegna segja að það séu góð tímamót nú að við reynum að setja það niður fyrir okkur með hvaða hætti, á hvað löngum tíma og hvernig við viljum ljúka hringveginum.