[15:42]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) :
Virðulegi forseti. Síðar í dag mun ég gefa út fréttatilkynningu um skattlagningu blaðburðarfólks og blaðsölufólks. Ástæðan fyrir því að ég hef ákveðið að fara fram á þessa utandagskrárumræðu og nota þetta form er sú að í þeirri fréttatilkynningu mun verða vikið að meintum embættisverkum fyrirrennara míns, þáv. fjmrh., hv. 8. þm. Reykn.
Í fréttum blaða og sjónvarps í gær og í blöðum í dag reyndar líka hefur verið gefið sterklega í skyn að fyrrv. fjmrh. hafi beitt sér gegn skattlagningu blaðburðarbarna og tekið ákvörðun um að láta hjá líða að skatturinn sé tekinn með staðgreiðslu af launum. Í tilefni af þessu hef ég látið athuga gaumgæfilega í ráðuneytinu og embættum skattkerfisins hvort fyrrv. fjmrh. hafi með beinum eða óbeinum hætti, formlegum eða óformlegum, beitt sér í þessu máli. Enginn embættismannanna kannast við að svo hafi verið gert, þvert á móti hafa starfsmenn í skattkerfinu áfram unnið að þessum málum á grundvelli bréfa sem send voru frá ríkisskattstjóra á þeim tíma þegar hv. 8. þm. Reykn. var fjmrh.
Ástæðan fyrir því að málið var tekið upp af skattyfirvöldum í fjármálaráðherratíð hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar var sú að kæra barst frá blaðaútgefanda utan af landi og umboðsmaður Alþingis skrifaði skattyfirvöldum af því tilefni. Lögin um skattskyldu tekna eru eins og hv. alþm. er kunnugt fortakslaus, en ráðherra getur með reglugerð heimilað við viss skilyrði að fresta innheimtu, þ.e. að í stað staðgreiðslu séu skattar greiddir eftir á. Yfirleitt er það þó óþægilegra, sérstaklega fyrir þá sem eru yngri en 16 ára. Ekki er reyndar deilt um skattskylduna í þessu máli heldur hvort halda skuli eftir af launum viðkomandi starfsfólks.
Mér sýnist eðlilegt að hér á hinu háa Alþingi gefist fyrrv. fjmrh. kostur á að gera grein fyrir því hvort hann hafi beitt sér í þessu máli, eins og haldið hefur verið fram, í hvaða formi það hafi verið gert, til hverra fyrirmælin beindust og á hvaða lagagrunni það var gert. Það er afar brýnt að ræða þetta mál hér vegna þess að því er haldið fram að pólitísk ákvörðun fyrrv. fjmrh. hafi ráðið því að dagblaðaútgáfufyrirtæki héldu ekki eftir lögboðnum sköttum sumra starfsmanna sinna. Á sama hátt er því haldið fram að ákvörðun skattstjóra um þetta efni, sem reyndar er tekin í fullu samráði við forráðamenn dagblaðanna, sé
pólitísk ákvörðun mín. Ég vil ítreka að þessi umræða er þeim mun nauðsynlegri að mál þetta byrjaði með bréfi sem skrifað var í valdatíð fyrrv. ráðherra og hefur verið ítrekað í bréfum skattyfirvalda nokkrum sinnum síðan. Það er því mjög alvarlegt mál þegar því er haldið fram á opinberum vettvangi að fyrrv. ráðherra hafi með pólitískri ákvörðun sinni beitt sér fyrir því að ekki sé farið að lögum um innheimtu staðgreiðslu skatta hjá atvinnufyrirtækjum.
Virðulegi forseti. Það er von mín að mál þetta skýrist nokkuð í þessari umræðu enda er tilgangur hennar sá að hér fáist fram hver hafi verið afskipti fyrrv. fjmrh. af þessum málum. Hvort þau voru einhver og þá í hvaða formi þau voru og til hverra fyrirmælin beindust.