[16:04]
Ólafur Ragnar Grímsson :
Virðulegi forseti. Ég vænti þess að forseti muni eftir því að ég spurði að því fyrr í dag þegar forseti tilkynnti þessa utandagskrárumræðu hvert væri erindi fjmrh. til þingsins með þessari umræðu. Ég fékk ekkert svar við því. Nú er fjmrh. hins vegar búinn að koma fram í tvígang með þeim sérkennilega hætti að hann fer fram með þá sérstöku ósk ráðherra, sem er afar óvenjuleg í þingsögunni, til þess að bera einn þingmann eða taka hann upp, bera hann sökum eða taka hann upp eins og hann hefur flutt mál sitt gagnvart mér. Þetta er auðvitað svo ódrengilegt og óþingræðislegt að það nær ekki nokkurri átt, hæstv. fjmrh. eða hæstv. forseti. Það bætir ekki stöðu hæstv. fjmrh. í þessu máli. Staðreyndin er sú að í sex ár hafa yfirmenn skattkerfisins á Íslandi ekki framkvæmt lögin með þeim hætti að knýja á um að blaðsölubörnin eða merkjasölubörnin yrðu skattlögð. Í sex ár.
Ef hæstv. fjmrh. vill halda því til streitu að það hafi verið lögbrot allan tímann vegna þess að það sé ómark að fyrrv. fjmrh. hafi beitt sér fyrir þessari túlkun þá er hann í raun og veru að bera yfirmenn skattkerfisins á Íslandi þeim sökum að þeir hafa í sex ár látið lögbrot í skattkerfinu líðast. Hann er að bera þá þeim sökum. Það væri þá nær fyrir hæstv. fjmrh. að flytja þann málflutning á þeim vettvangi þar sem hann er yfirmaður, hjá ríkisskattstjóra, hjá skattstjóranum og í staðgreiðslukerfinu, frekar en að fara í þessa ómerkilegu og ódrengilegu leikfimi hér í salnum.
Auðvitað er það þannig með skattalög að túlkun er þar ákveðinn þáttur eins og á öðrum sviðum laga. Og vegna þessa sérkennis íslensks þjóðfélags að blaðasala barna og merkjasala barna, t.d. fyrir Blindrafélagið og önnur líknarfélög er þannig að það eru ekki venjuleg vinnulaun eða venjuleg tekjuöflun var talið rétt og er rétt að vera ekki að beita reglustikuaðferðum skattkerfisins á þessa starfsemi barnanna og það hefur ekki verið gert í sex ár. (Forseti hringir.) Ef hæstv. fjmrh. ætlar virkilega að halda því til streitu að það hafi verið lögbrot allan tímann þá væri nær fyrir hann að skamma yfirmenn skattakerfisins sem hann er að halda fram að hafi brotið lögin vegna þess að enginn hafi talað við þá, hvorki ég né hann. Auðvitað var það þannig að í viðræðum mínum (Forseti hringir.) við aðila á þessum tíma lét ég þessa skoðun mína í ljós og hinir vönduðu embættismenn skattkerfisins fóru eftir þeirri skoðun. Þess vegna hafa
þeir ekki í sex ár rukkað börnin (Forseti hringir.) vegna þeirra tekna sem þau hafa haft af merkjasölu fyrir líknarfélög eða fyrir útburð eða sölu blaða.