Hádegisverðarhlé

32. fundur
Fimmtudaginn 10. nóvember 1994, kl. 10:37:35 (1416)


[10:37]
     Hjörleifur Guttormsson :
    Virðulegur forseti. Það er góðfúsleg ábending til forseta. Mér finnst það vera slæmir siðir ef það á að fara að haga svo til hér á fimmtudegi þegar þingfundur byrjar kl. 10.30, að ekki sé gefið hádegisverðarhlé í einhverju formi. Mér finnst það mjög óskynsamlegt upp á svipinn á starfi þingsins að vera að hafa þetta samfellu og vildi biðja forseta um að endurskoða það.