Gizur Gottskálksson fyrir PBald, Björk Jóhannesdóttir fyrir JVK

33. fundur
Þriðjudaginn 15. nóvember 1994, kl. 13:44:18 (1474)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Kjörbréfanefnd mælir einróma með samþykkt kjörbréfs Gizurar Gottskálkssonar og skoðast það samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.
    Kjörbréfanefnd mælir enn fremur einróma með samþykkt kjörbréfs Bjarkar Jóhannsdóttur og skoðast það einnig samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.
    Gizur Gottskálksson og Björk Jóhannsdóttir hafa ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber þeim því skv. 2. gr. þingskapa að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.