Breytingar á ríkisstjórninni

33. fundur
Þriðjudaginn 15. nóvember 1994, kl. 13:54:18 (1482)


[13:54]
     Finnur Ingólfsson :
    Virðulegi forseti. Af orðum hæstv. umhvrh. er ekki annað að marka en að það hefði verið gengið úr skugga um það í þingflokki Alþfl. áður en breyting varð á ráðherraliði flokksins að ríkisstjórnin hefði stuðning allra hv. þm. Alþfl. Því vil ég spyrja hæstv. umhvrh.: Var það gert? Var það kannað í þingflokki Alþfl. hvort allir hv. þingmenn Alþfl. styddu núv. ríkisstjórn eftir þá breytingu sem gerð hefur verið á henni?