Breytingar á ríkisstjórninni

33. fundur
Þriðjudaginn 15. nóvember 1994, kl. 13:56:51 (1485)


[13:56]
     Eggert Haukdal :
    Virðulegi forseti. Hv. 1. þm. Austurl. heiðraði mig í þessari umræðu með því að nefna nafn mitt. Því miður hef ég ekki orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að hér væri borið upp sérstakt vantraust á hæstv. utanrrh. ( Gripið fram í: Þú verður bara að gera það sjálfur.) Ég hef margoft sagt að kæmi það hér til atkvæða mundi ég samþykkja slíkt vantraust og vil að gefnu tilefni af þessari umræðu undirstrika það.