Þuríður Bernódusdóttir fyrir JHelg

35. fundur
Fimmtudaginn 17. nóvember 1994, kl. 10:30:52 (1568)


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseta hefur borist eftirfarandi bréf, dags. 16. nóv. 1994:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Þuríður Bernódusdóttir verkstjóri, Vestmannaeyjum, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Jón Helgason, 2. þm. Suðurl.``



    Þuríður Bernódusdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa.