Náttúruvernd

35. fundur
Fimmtudaginn 17. nóvember 1994, kl. 11:54:40 (1579)


[11:54]
     Umhverfisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég hef gert þinginu grein fyrir skoðunum mínum á þessu máli. Ég sagði jafnframt að það hefði orðið ákveðin niðurstaða við upphaf þessarar ríkisstjórnar um hvernig þessum málum skyldi hagað. Ég vil ítreka það sem ég hef sagt hér áður að þrátt fyrir mínar skoðanir á þessu máli þá hyggst ég ekki beita mér fyrir eða taka þátt í því að brjóta samkomulag sem hefur verið gert.