[12:24]
Svavar Gestsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Það er alveg rétt, það er ekki gott að menn séu að vekja upp úfa að óþörfu. En tilefni umræðunnar er hvað? Það er það að hæstv. umhvrh. sagðist vilja stofnanirnar undir sig. Og þegar deilur í ríkisstjórninni eru opinberaðar í þessum virðulega stól í þessari stofnun þá náttúrlega hlýtur það að vekja menn til umhugsunar. Vegna þess að ég spyr hvaða annað mál er það sem er þannig á milli ráðuneyta að t.d. umhvrh. eða landbrh. segi: Ég vil endilega fá þetta inn undir mitt ráðuneyti, ég vil breyta verkaskiptingu Stjórnarráðsins gagnvart þessu tiltekna ráðuneyti. Það í raun og veru liggur þannig að hæstv. umhvrh. er þeirrar skoðunar að þessar stofnanir eigi að vera þarna.
Þannig að það er alveg ljóst að úfarnir eru inni í ríkisstjórninni. Ríkisstjórnin hefur ekki náð sátt um málið og þess vegna er óhjákvæmilegt að færa málið úr bakherbergjum Stjórnarráðsins hér inn í þessa lýðræðislegu stofnun þannig að menn geti borið saman bækur sínar.