Útflutningur hrossa

35. fundur
Fimmtudaginn 17. nóvember 1994, kl. 16:28:46 (1626)


[16:28]
     Páll Pétursson (andsvar) :
    Frú forseti. Það er auðvitað drengilegt af hæstv. landbrh. að bera blak af hæstv. utanrrh. og launa þar með illt með góðu því að sannarlega ber hæstv. utanrrh. ekki blak af hæstv. landbrh. Orðum mínum um áhrif eða raup landbrh. varðandi áhrif á landbúnaðarstefnuna get ég fundið stað t.d. í útvarpsviðtali sem ég á útskrifaða eftir hann frá fyrra ári.
    Það væri betur að svo væri að landbrn. færi með landbúnaðarmálin í þessum samningum en það hefur ekki verið raunin. Hvað eftir annað hafa sjónarmið hæstv. utanrrh. orðið ofan á og hæstv. landbrh. hefur verið hunsaður og það er ótrúlegt langlundargeð sem hann hefur sýnt í þessum málaflokki.