[16:41]
Páll Pétursson :
Frú forseti. Fyrst um formið. Þetta er nokkuð óvanalegt form á þingskjali, þ.e. í staðinn fyrir að venjulega fylgir þingsályktunum greinargerð þá er textinn ,,Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa`` eins og þetta væru athugasemdir við lagafrumvarp. Þetta er kannski ekki mikið atriði en ég vil þó vekja athygli á því. Mér finnst fara vel á því að halda því að hafa greinargerðir með þáltill. en athugasemdir með lagafrv. og mætti hafa það til athugunar fyrir þá sem vinna að þingsályktanagerð í ráðuneytunum.
Ég hef tækifæri til þess að fjalla um þetta mál í utanrmn. og get verið stuttorður. Það er vandræðagangur í þessu millibilsástandi og þetta er e.t.v. ekki óskynsamleg leið til þess að lifa af næstu sex mánuði. Á hinn bóginn væri náttúrlega freistandi að ræða nokkuð hvernig ríkisstjórnin hefur hugsað sér að standa að framhaldinu en þar sem nokkuð er áliðið dags og fáir mættir í salnum ætla ég að stilla mig um það í bili.