[11:41]
Tómas Ingi Olrich (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég get tekið undir þær ábendingar sem koma fram hjá hv. 2. þm. Vestf. Fiskvinnslan hefur nokkuð svona spyrnt við fæti að því er varðar þetta kynningarstarf á því framleiðsluferli sem fer fram innan fiskvinnslufyrirtækjanna vegna þess að það skapar ákveðna erfiðleika í sambandi við vöruframleiðslulínurnar. En engu að síður er þetta svo að þarna þyrfti að verða breyting á því að það fer ekkert milli mála að milli matvælaiðnaðarins sem byggist á hreinum og hollum afurðum og ferðaiðnaðarins sem reynir að kynna Ísland sem land hreinnar og til þess að gera ósnortinnar náttúru hljóta að vera mikil tengsl. Matvælaiðnaðurinn eyðir geysilega miklum peningum í sitt kynningarstarf. Ferðaþjónustuna eins og hv. þm. benti réttilega á hér áðan skortir peninga til kynningarstarfs. Er ekki rétt að kanna hvort hægt er að leiða þessar tvær atvinnugreinar, þessa stóru atvinnugrein, matvælaframleiðsluna á Íslandi sem veltir milljörðum, tugum milljarða og ferðaþjónustuna sem veltir miklum peningum, leiða þær saman þannig að kynningarstarf þeirra geti með einhverjum hætti sameinast? Ég er viss um að þetta er hægt en þetta þarf að skoða og undirbúa réttilega og ég hefði viljað að sú hugsun sem er í þessu plaggi hér og er góð, næði yfir þetta allt.