[14:50]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) :
Virðulegi forseti. Í fyrsta lagi vil ég benda á að þegar lögin voru samþykkt á sínum tíma þá var gert ráð fyrir mjög breiðri eignaraðild að fyrirtækinu og eftir því hefur verið farið í hvívetna. Það má gera ráð fyrir að eigendur að þessu fyrirtæki geti orðið um 2.000 manns og ég tel að það sé til mikillar fyrirmyndar.
Það er rétt sem ég sagði fyrr að við gerum ráð fyrir því að söluheimild verði flýtt. Um það var samið að helmingurinn sæti eftir í fyrirtækinu og það þyrfti lagaheimild til þess að selja síðari hluta fyrirtækisins og eftir því er að sjálfsögðu farið. Það gefst tækifæri til þess fyrir hv. alþm. að ræða um málið á hinu háa Alþingi og í nefnd þegar frv. kemur fram. Þá er hægt að líta vel yfir það hvort ekki hefur verið staðið við öll efni samningsins.
Varðandi fyrirspurn hv. þm. Guðmundar Bjarnasonar skal það tekið fram að það hefur verið farið vandlega yfir SR-málið og verklagsreglum ríkisstjórnarinnar fylgt í hvívetna.
Við verðum að hafa í huga að verðmat fyrirtækisins byggist á áætlun um framtíðartekjur þess. Ég vil loks taka fram að þess má til gamans geta að Kaupþing og framkvæmdanefndin um einkavæðingu gerði ráð fyrir því að 20--60% bréfanna mundu seljast fyrir áramót en það eru ýmsar skýringar á því hvers vegna salan gekk svona fyrir sig og geta menn auðvitað lært á því. Það eru mörg önnur atriði en hér hafa verið nefnd til sögunnar sem ég veit að fulltrúar fyrirtækjanna sem að þessu stóðu munu með ánægju skýra út fyrir hv. þm. þegar málið verður tekið fyrir í nefnd.
Ég vil að lokum segja þetta, virðulegi forseti: Hv. þm. Svavar Gestsson er að sjálfsögðu á móti einkavæðingu. Hann hefur alltaf verið á móti einkavæðingu. Þeir sem hins vegar styðja einkavæðingu gera það m.a. vegna þess að þeir hafa trú á því að það sé hægt að fá nýtt fjármagn inn í fyrirtækin, nýtt fjármagn til þess að byggja upp atvinnulífið í landinu. Það ( SvG: Þetta er rangt.) sem við höfum verið að gera í þessu máli er að standa (Gripið fram í.) að því með þessum eðlilega hætti sem gert hefur verið. ( SvG: Ráðherrann er að gefa eigur sem hann á ekkert í.