[17:37]
Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) :
Virðulegi forseti. Hv. þm. spyr hvort búið sé að úthluta 50 millj. sem Alþingi samþykkti að veita íslenskum fyrirtækjum til markaðsátaks í EES-löndum. Svarið er jú. Það er búið að úthluta þessu fé til 42 aðila, þ.e. 48 af þessum 50 millj. og það var gert þann 4. nóv. sl. og eru bréf með þeirri afgreiðslu farin til viðkomandi aðila.
Hv. þm. spyr hvort upphæðin hafi ekki verið varið til íslenskra fyrirtækja og svarið við því er að samkvæmt úthlutunarreglunum er þessu varið samkvæmt umsóknum til fyrirtækja, einstaklinga og stofnana.
Það er rétt að gera grein fyrir því að úthlutunin er í höndum nefndar fjögurra ráðuneyta auk þess sem framkvæmdastjóri Útflutningsráðs starfar með nefndinni. Tillögur nefndarinnar voru alveg ágreiningslausar. Hins vegar kom upp ágreiningur um það atriði sem hv. þm. nefndi í ríkisstjórn. Úthlutunin skiptist þannig:
Fiskvinnsla, 9 fyrirtæki. Styrkupphæð 11,5 millj.
Iðnaður, 12 fyrirtæki. Styrkupphæð 12,8 millj.
Hugbúnaður, 10 fyrirtæki. Styrkupphæð 9 millj. 940 þús.
Rafeindaiðnaður, 6 fyrirtæki. Styrkupphæð 6 millj.
Landbúnaður, 4 fyrirtæki. Styrkupphæð 3 millj. 875 þús.
Ferðaþjónusta, 2 fyrirtæki. Styrkupphæð 1,5 millj.
Annað nemur 3 millj. kr.
Af því að hv. þm. spurði um þann ágreining sem upp kom innan ríkisstjórnar þá er frá því að segja
að þar var ekki fallist á þá úthlutun nefndarinnar sem varðaði 2 millj. kr. og varðaði sýningu og markaðsátak sem var í tengslum við þjóðhátíðarstarfsemina. Á bak við það er þetta að segja: Í tilefni af lýðveldisafmælinu var varið nokkurri upphæðum af ráðstöfunarfé ríkisstjórnar til sendiráða í nokkrum þjóðlöndum. Hugsunin á bak við það var sú að nýta þá athygli sem Ísland naut á þeim tíma og fylgja því eftir með markaðsátaki. Að því er varðar þessar aðgerðir í London snerust þær m.a. um sýningu á íslenskum matvælum, fatnaði og listaverkum sem og sérstakri ferðakynningu sem beint var eingöngu að vetrarferðum. Á þessari sýningu var m.a. kynnt íslensk fatahönnun. Því næst má nefna þátttöku íslenskra fyrirtækja við að kynna íslensk matvæli, sérstaklega fiskmeti og fiskvörur fyrir breska hótelmarkaðinn. Í framhaldi af því hafa átt sér stað samningaviðræður milli íslenskra aðila og þriggja aðila sem sérstaklega sóttu þessa sýningu. Auk þess má nefna þá áherslu sem lögð var á útflutning á drykkjarvörum og þá sérstaklega íslensku vatni og öli.
Það var talið í ríkisstjórn að þessi umsóknaraðili uppfyllti ekki skilyrði vegna þess að þessi starfsemi hefði verið afstaðin þegar úthlutun fór fram. Sannleikurinn er sá að þessi kynning, sem var hvort tveggja í senn vörukynning, markaðsátak og listahátíð, stendur yfir undir merkinu Northen Light Years allt þetta ár. Að mínu mati var um að ræða átak sem féll undir úthlutunarreglurnar um sérstakt markaðsátak, en það er sérstaklega tekið fram í úthlutunarreglunum að þar sé ekki um að ræða stuðning við vöruþróun, laun starfsmanna eða fjárfestingu í tækjabúnaði heldur eingöngu eins og þar er sagt, um markaðssetningu sem líklegt er að verði til þess að kynna eða leiða til sölu á nýjungum í íslensku atvinnulífi í framhaldi af EES-samningunum.
Nefndin hefur sem sé lokið afgreiðslu á 48 millj. Að venju eins og gert var í fyrra verður það að sjálfsögðu allt saman birt en henni hefur verið falið að ljúka þessari úthlutun og hvort það er afstaða á þessari stundu er mér ekki fullkunnugt um.