[15:42]
Sturla Böðvarsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Málflutningur hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur er alveg dæmalaus. Hv. þm. leyfir sér að koma hingað og tala til okkar þingmanna og vara okkur við að gefa of miklar væntingar út í þjóðfélagið gagnvart þeim sem eru í vanda í húsnæðiskerfinu. Þessi hv. þm. sem fer nú um og gefur væntingar um það að hennar hópur væntanlegur, hennar flokkur væntanlegur muni leysa allan vanda. Ég frábið mér slíkan málflutning eins og hv. þm. leyfir sér að viðhafa hér.
Í framhaldi af því reynir hún að gera Sjálfstfl. tortryggilegan með því að spyrja hæstv. félmrh. hvort samkomulag hafi náðst við Sjálfstfl. Náði hv. þm. ekki samkomulagi sem félmrh. við Sjálfstfl. um greiðsluaðlögun? Síðan kemur þingmaðurinn núna og talar um að það þurfi að gefa víðtækari heimild fyrir greiðsluaðlögun og lengingu lána. Hvar hefur þessi þingmaður verið sem var félmrh. í sjö ár?