[15:45]
Sturla Böðvarsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég fagna því að hv. 12. þm. Reykv. hefur dregið í land. Þingmaðurinn áttar sig auðvitað á því að svona málflutningur gengur ekki í þinginu. Hv. þm. hefur haft gott tækifæri til þess í ráðherrastól að ná fram úrbótum í þessum málum. Það hefur ekki staðið á Sjálfstfl. að taka á þeim tillögum sem settar hafa verið fram um þessi efni. Ég kannast ekki við það. Og það hafa ekki verið kynntar neinar tillögur fyrir þingflokki Sjálfstfl. frá félmrh. um þessi efni. Ég vísa því algerlega á bug þannig að það liggi alveg klárt fyrir og enginn geti skilið það svo að það standi á Sjálfstfl. að samþykkja tillögur um greiðsluaðlögun.