[13:47]
Iðnaðarráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
Virðulegi forseti. Hvers vegna var umbeðin skýrsla ekki afhent? Vegna þess að sá sem um hana bað hafði ekki beinna hagsmuna að gæta. Málið var sent umboðsmanni Alþingis að frumkvæði þess aðila sem um skýrsluna bað og ekki fékk. Eftir því sem mér er best kunnugt þá hefur umboðsmaður Alþingis fjallað um málið og staðfest sem réttmæta þá afstöðu sem iðnrn. tók.