[15:45]
Anna Ólafsdóttir Björnsson :
Virðulegur forseti. Það gífurlega álag sem verið hefur sjúkrastofnunum í verkfalli sjúkraliða ætti að færa mönnum heim sanninn um hve gífurlega mikilvægt starf sjúkraliða er hafi þeir ekki vitað það fyrir. Það ætti að sjálfsögðu að vera launað í samræmi við það. Því óréttlæti þarf að linna að kvennastörf, fjölmennar kvennastéttir séu vinnandi við mikið erfiði og illa launaðar og umbunin verði í takt við álagið. Umbunin er í öfugum takti við álagið núna en þarf að verða í réttum takti við álagið og ég held að það sé augljóst mál að skiljist hæstv. ráðherra þetta þá ætti að vera auðvelt að höggva á þann þéttknýtta hnút sem hefur verið í þessari deilu, sérstaklega vegna þess að menn hafa leyft honum að herðast og herðast án þess að hafast nokkuð að. Það á að vera hægt að gefa grænt ljós á sómasamlegar kjarabætur.
Sjúkraliðum berast þessa dagana baráttukveðjur úr mörgum áttum og m.a. ein frá opinberum starfsmönnum á Austurlandi en félagið þar minnir á það óréttlæti að meta meira umönnun peninga en umönnum fólks. Þetta er einmitt kjarni málsins og það eru ekki síst konur sem vinna við ummönnun fólks. Við þurfum að breyta þessu og sé það eitthvað annað en kokhreysti í hæstv. ríkisstjórn að við eigum nú efnahagsbata fram undan þá held ég að það eigi að nýta það lag sem nú er til að breyta þessu og fara að taka upp manneskjulegar áherslur í kjaramálum hér á landi.