[14:04]
Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) :
Virðulegi forseti. Það er einfaldlega ósatt sem nokkrir hv. þm. hafa sagt og lýst sem meginniðurstöðu þessarar umræðu að utanrrn. hafi beðið Sjávarútvegsstofnun um eitthvað annað en fólst í ályktun ríkisstjórnarinnar. Þetta eru ósannindi vegna þess að ályktun ríkisstjórnarinnar var beiðni um að kortleggja afleiðingar sameiginlegrar fiskveiðistefnu og áhrif á sjávarútveginn. Það sem Sjávarútvegsstofnun var beðin um að gera var að rannsaka fiskveiðistefnu Evrópusambandsins, fyrirætlun og framkvæmd og áhrif hennar af inngöngu eða ekki inngöngu. Það er nákvæmlega það sama og í verkbeiðni ríkisstjórnarinnar fólst.
Að því er varðar trúnað og birtingu þá er það svo að þær skýrslur sem búið var að afhenda ríkisstjórn og utanrmn. voru ekki með neinum trúnaðarstimpli frá utanrrn. Það er líka ósatt og er margbúið að endurtaka það. Þá spyr maður: Hvaða aðgang eiga þá hv. þm. að þessum skýrslum? Með nákvæmlega sama hætti og fulltrúi þingflokks Alþfl. í utanrmn. gat kynnt skýrslur utanrmn. sem ekki voru bundnar trúnaði í sínum þingflokki þá var það gert. Þannig höfum við rætt málið. En hitt er alveg ljóst eins og fram kom í máli forsrh. að það er meinbugur á einu máli. Það er einfaldlega að skýrsla Sjávarútvegsstofnunar var stimpluð trúnaðarmál og það hafði borist bréf frá utanrrn. --- að vísu er langt síðan, 26. sept. --- var sjálf bundin trúnaði og þeir beðnir um að halda þeim trúnaði út á við. Ég viðurkenni staðreyndir. Þetta er meinbugur á og á þessu ber að biðjast velvirðingar því forstöðumaður þessarar stofnunar hefði ekki átt að taka þátt í þessum opinbera fundi. Að því er varðar hina þá er utanrrn. búið að segja þeim að frá sjónarmiði þess væri ekkert að vanbúnaði að forstöðumenn stofnana sem bera hina fræðilegu ábyrgð kynni niðurstöðurnar því það var ekki bundið neinum trúnaði. Að því er varðar þingmenn þá var þeim í lófa lagið og eðlileg vinnubrögð í þingflokkum að ræða efni skýrslna sem ekki voru trúnaðarstimpluð á sínum þingflokksfundum.
Ég tek undir með hv. þm., fulltrúa Kvennalistans, að ég harma það þegar þingmenn gera það að vana sínum að fara niðrandi orðum um efni sem þeir jafnframt segja að þeir hafi ekki kynnt sér og ekki lesið og reyna þannig að grafa undan áliti á fræðistarfsemi háskólans.