Ólafur Ragnar Grímsson :
Virðulegi forseti. Í fyrsta lagi sagði hæstv. utanrrh. að það væri ósatt hjá okkur þingmönnum mörgum, þar á meðal málshefjanda, að utanrrn. hefði tekið þátt í því að sérvelja afmarkaða þætti úr verkbeiðni ríkisstjórnarinnar til þess að fjalla um í skýrslum sínum enda er náttúrlega hæstv. utanrrh. á þessari stundu að reyna að útskýra þetta fyrir forsrh. Það sér það auðvitað hver maður í þingsalnum á því sem er að gerast hér til hliðar að forsrh. hefur ekki haft hugmynd um þessa sérstöku verkbeiðni utanrrn. til Sjávarútvegsstofnunar. Ég skil það hins vegar vel að hæstv. forsrh. hiki við að koma upp í stólinn til að viðurkenna það formlega vegna þess að það er auðvitað . . .
( Forseti (SalÞ) : Forseti biður þingmanninn að bera af sér sakir.)
Já, ég er að því hér, hæstv. forseti, --- vegna þess að það er alvarlegur hlutur þegar utanrrh. Íslands notar það að hann er síðastur á mælendaskrá til að bera þingmenn þeim sökum að þeir segi ekki satt. Þetta liggur alveg ljóst fyrir.
Í öðru lagi er það líka rangt hjá hæstv. utanrrh. að við í utanrmn. sem sitjum þar sem fulltrúar þingflokka höfum vanrækt að kynna þingflokkum okkar skýrsluna vegna þess að við hefðum átt að fara með skýrslurnar inn í þingflokkana og er þess vegna að koma sökinni á því að þingmenn hafi ekki fengið þessar skýrslur yfir á okkur sem sitjum í utanrmn. Þetta er ódrengilegt og óheiðarlegt og ómaklegt af hæstv. utanrrh. og er nú vont að formaður utanrmn., hv. þm. Björn Bjarnason, skuli vera fjarverandi vegna þess að það var alveg skýrt þegar okkur voru afhentar þessar skýrslur í utanrmn. á fyrstu dögum þingsins að það var gert með því fororði að skýrslurnar væru trúnaðarmál fyrir utanríkismálanefndarmenn og varamenn þeirra. Það hefur gilt sú regla í áratugi í utanrmn. að skjöl sem eru afhent með þeim hætti er ekki farið með inn í þingflokkana til þess að kynna eða ræða þar.
Ég bið nú hæstv. utanrrh. að hætta þeim ljóta leik að vera að bera fram falsanir í þessu máli.