[17:03]
Félagsmálaráðherra (Rannveig Guðmundsdóttir) :
Virðulegi forseti. Það var búið að vinna þetta mál nokkuð í félmn. og nefndin, eins og hér hefur komið fram, lagði til ákveðna málsmeðferð við afgreiðslu málsins sl. vetur og það hefur verið tekið tillit til þess í vinnunni við málið. Ég vil vekja athygli á því að hér er verið að setja rannsóknir og forvarnir í öndvegi, sem er mjög mikilvægt. Með tillögunum og því frv. sem vonandi kemur fram fljótlega og nær fram að ganga er verið að gera fimm ára átak og verið að bæta þar með úr að forvarnir hafa að hluta verið vanræktar. Það er einnig mjög mikilvægt að það verði litið yfir stærra svæði í einu. Þar sem þetta mál var á hendi hverrar sveitarstjórnar þá litu þær mjög afmarkað á sinn þátt og sveitarstjórnir voru misjafnlega í stakk búnar til að taka á þessu máli. Ég lýsi því yfir sömu ánægju og málshefjandi með hvernig þetta mál hefur unnist.