[13:59]
Ólafur Ragnar Grímsson :
Virðulegi forseti. Það hefur töluvert verið rætt um það á undanförnum missirum að Ísland kynni að einangrast í viðskiptalegu tilliti ef við sæktum ekki um aðild að Evrópusambandinu. Það er þess vegna dálítið skemmtileg tilviljun að um leið og Norðmenn hafna aðild að Evrópusambandinu þá skuli næsta dag hæstv. utanrrh. flytja hér framsögu fyrir víðtækasta alþjóðlega samkomulaginu sem gert hefur verið um viðskipti í veröldinni. Það frv. sem hér liggur á borðum og hæstv. utanrrh. var að mæla fyrir er einhver skýrasta afsönnun kenningarinnar um einangrun Íslendinga í viðskiptalegu tilliti ef við gerumst ekki aðilar að Evrópusambandinu.
Satt að segja er alþjóðasamningurinn um GATT sem hér er mælt fyrir miklu merkilegra fyrirbæri en þeir Evrópusamningar sem Evrópusambandið hefur verið að burðast við að gera, bæði innan sinna eigin vébanda og við aðra. Það var mjög mikilvæg niðurstaða að þjóðum heims tókst að ná samkomulagi um þær grundvallarreglur sem eru í frv. og að setja upp stofnun sem á að hafa það að verkefni að tryggja að þeim reglum sé fylgt. Alþb. hefur á undanförnum árum verið eindregið hvetjandi þess að víðtækt alþjóðlegt samkomulag næðist um viðskipti í veröldinni. Við höfum talið að við Íslendingar ættum að kappkosta að eiga aðild að slíkum alþjóðlegum viðskiptasamningum og það væri mikilvægt fyrir þjóð sem byggði jafnmikið á útflutningi og innflutningi og við gerum að hið alþjóðlega viðskiptakerfi í veröldinni þróaðist með þeim hætti sem GATT-samningarnir fela í sér. Auðvitað er það þannig með viðamikla samninga af þessu tagi að margt í þeim kann að orka tvímælis og sumt kann að rekast á hagsmuni líðandi stundar. Það breytir því ekki að GATT-samkomulagið í heild sinni er viðamesta staðfesting samfélags þjóðanna á undanförnum árum um að mannkynið ætli í sameiningu að reyna að þróa viðskipti sín eftir ákveðnum og nútímalegum reglum sem hafa það að markmiði að reyna að koma öllum eitthvað fram á við til betri lífskjara og traustari efnahags. Við styðjum það því þess vegna að frv. fái eðlilegri meðferð í þinginu og fögnum því í sjálfu sér að niðurstaða skuli hafa náðst sem gerir okkur Íslendingum kleift að vera víðtækir þátttakendur í alþjóðlegu samstarfi. Ég vona þess vegna að maður heyri ekki miklu meira um þetta einangrunartal sem satt að segja hefur farið mikið í taugarnar á manni á undanförnum árum og sérstaklega síðustu missirum vegna þess að það er fullkomlega óraunhæft. Það er leiðinlegt að heyra ábyrga aðila sem gegna trúnaðarstörfum í þjóðfélaginu fara með slíkar fullyrðingar.
Hins vegar ber að harma það að á vettvangi ríkisstjórnarinnar skuli ekki hafa verið lokið þeirri vinnu sem er nauðsynlegur fylgifiskur þessa frv. Aðeins var vikið að því í fáeinum setningum í ræðu hæstv. utanrrh. að nefnd undir formennsku ráðuneytisstjórans í forsrn. hefði verið falið það verkefni en okkur hafa ekki verið kynntar neinar niðurstöður úr því nefndarstarfi. Það er mjög bagalegt. Enn á ný er það að gerast að vegna vanrækslu í undirbúningi er þingið að komast í tímaþröng við afgreiðslu máls af þessu tagi án þess að hafa öll gögn á borðinu. Ég á satt að segja bágt með að skilja það hvernig stendur á því í ljósi þess hvað þetta mál er viðamikið að þessari vinnu er ekki lokið. Ég vil þess vegna inna hæstv. utanrrh. eftir því við 1. umr. málsins að hann skýri nánar frá því hvar þessi vinna er á vegi stödd og hvenær henni muni ljúka.
Það kom fram t.d. á fundi í utanrmn. í gær að nefndin er reiðubúin að leggja mikla vinnu í málið og mun ekkert telja það eftir sér en nefndin vill fá fram á borðið niðurstöður þeirrar nefndar sem ráðuneytisstjórinn í forsrn. veitir forstöðu. Fyrr en þær liggja fyrir verður óskaplega erfitt að láta fara fram í þinginu vitræna umræðu um það hvernig við Íslendingar eigum að bregðast við ákveðnum, afmörkuðum viðfangsefnum sem tengjast samningnum.
Virðulegi forseti. Ég vildi aðeins á þeim takmarkaða tíma sem við höfum samkvæmt þingsköpum til þess að ræða þetta mál við 1. umr. láta almennu sjónarmiðin koma fram en óska eftir nánari skýringum frá hæstv. utanrrh. á því hvað smíði þeirra frumvarpa og reglugerða og annarra gagna sem tengjast málinu sem okkur Íslendinga snertir líði og hvenær þess sé að vænta að þingflokkar, nefndir þingsins og aðrir hlutaðeigandi aðilar geti fengið niðurstöður þeirrar vinnu í hendur. Virðulegi forseti. Vont er að
hafa hæstv. landbrh. í burtu en verra er að hæstv. utanrrh. getur ekki einu sinni setið í salnum fyrsta hálftímann að umræðunni um þetta stóra mál. Það er kannski eins og annað í þessu blessaða stjórnkerfi að þegar GATT-samningurinn kemur til umræðu á Alþingi og við viljum beina eðlilegum og efnislegum spurningum til hæstv. utanrrh. endist hann ekki til að sitja í salnum fyrsta hálftíma umræðunnar.