Samningur um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar

45. fundur
Þriðjudaginn 29. nóvember 1994, kl. 16:30:35 (2078)


[16:30]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég komst ekki yfir það í fyrra andsvari að nefna það að hæstv. utanrrh. lýsir því yfir hver sé hans skoðun á því hvernig eigi að haga lágmarksinnflutningnum. Þar á hlutkesti að ráða hverjum hlotnast hnossið. Hæstv. landbrh. fékkst ekki til þess að svara einu né neinu um þessi atriði, en það er kannski ekki viðkunnanlegt í andsvari við hæstv. utanrrh. að ganga eftir því. Það hefði verið mjög æskilegt að fá einnig fram sjónarmið hæstv. landbrh. um þetta atriði, en e.t.v. hefur hæstv. ráðherra enga skoðun á málinu og lætur þess vegna ekkert frá sér heyra um málið.