Samningur um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar

45. fundur
Þriðjudaginn 29. nóvember 1994, kl. 16:48:04 (2090)


[16:48]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Hv. þm. misskildi það sem ég sagði hér. Ég sagði að það yrði heimilt að veita útflutningsbætur á dilkakjöt, útflutningsbætur yrðu heimilaðar en á hinn bóginn mundi draga úr þeim.