[14:33]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég er þakklátur fyrir að hafa komið því til skila nákvæmlega að það er ekki hægt að selja bréfin strax, það er ekki hægt að selja þau fyrr en búið er að greiða síðasta eyrinn á þessum greiðslukjörum þannig að það sé ljóst.
Í öðru lagi er spurst fyrir um hvort ekki sé hætta á því að einhver aðili kaupi bréfin. Það getur auðvitað gerst í tímans rás en hér skulum við hafa í huga að hugsanlegir eignaraðilar að þessu fyrirtæki gætu verið 2.000 talsins. Það þarf ansi mikla skipulagsgáfu til þess að ná þeim saman með mjög skjótum hætti þó auðvitað sé hugsanlegt að slíkt geti gerst í tímans rás. Ég get ekki séð til hvaða ráða á að grípa yfirleitt í íslenskum rekstri til að koma í veg fyrir að slíkt geti gerst. En þessi aðferð sem hér er notuð var talin best til þess fallin að ekki yrði um samruna fyrirtækja að ræða í þessari grein.
Að allra síðustu vil ég benda á að þetta fyrirtæki er ekki eitt af stærstu fyrirtækjunum í greininni. Fyrirtækið er reyndar stórt en ekki eitt af stærstu fyrirtækjunum. Þvert á móti hygg ég að bæði starfsmenn fyrirtækisins sem eru eigendur og þeir fjölmörgu sem festa kaup í þessum hlutabréfum séu að gera það til þess að eiga hlutabréfin enda hefur komið í ljós að á íslenskum hlutafjármarkaði hefur tiltölulega lítið verið selt af hlutabréfum miðað við það sem gengur og gerist hjá öðrum þjóðum. En ég skal viðurkenna að það er auðvitað aldrei hægt að útiloka það langt fram í tímann að slíkt gerist ekki.