Virðisaukaskattur

50. fundur
Miðvikudaginn 07. desember 1994, kl. 00:06:47 (2286)


[00:06]
     Ingi Björn Albertsson (um fundarstjórn) :
    Hæstv. forseti. Ég sé mig knúinn til að inna aftur eftir því sem ég spurðist fyrir um hér fyrir nokkrum mínútum síðan. Það var um þau mál sem hér voru tekin út af dagskrá, mál nr. 3 og 4, hvort það megi ekki skilja úrskurð hæstv. forseta á þá lund að þessi mál verði tekin á dagskrá á morgun, þau verði fyrstu mál á dagskrá fundarins á morgun? Ég fékk engin svör við þessu hjá hæstv. forseta áðan en ég óska eftir svörum við þessu.