[14:17]
Jóhann Ársælsson (um fundarstjórn) :
Hæstv. forseti. Var ekki rétt skilið hjá mér að hér ætti að ræða um breytingar á lögum um Þróunarsjóð sjávarútvegsins?
( Forseti (SalÞ): Það er rétt skilið að það er verið að taka fyrir 6. dagskrármál fundarins.)
Þá fer ég fram á, hæstv. forseti, að hæstv. sjútvrh. verði viðstaddur umræðuna. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að hæstv. sjútvrh. sé viðstaddur umræðu um þetta mál vegna þess að nú er að birtast hér ein tillaga um breytingu á þeim fiskveiðistjórnunarlögum sem sett voru í fyrra. Ég tel að full ástæða væri til að ræða við hæstv. sjútvrh. um það hvort ekki væri ástæða til þess að leggja fram ýmsar aðrar og meiri breytingar á lögum um stjórn fiskveiða og Þróunarsjóð en hér er verið að leggja fram. Þess vegna tel ég algerlega óviðunandi að hæstv. sjútvrh. sé ekki til staðar þegar umræðan um Þróunarsjóð fer fram.