[15:16]
Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Andsvar hæstv. ráðherra bar vott um undarlega blöndu af því að hann hafi hlustað ljómandi vel á ræðu mína og alls ekki eða misskilið hana.
Í fyrsta lagi tók ég fram að það ætti að fækka fiskiskipum og ég tók undir þau sjónarmið. Ég tel hins vegar að hægt sé að gera það með því að þau séu skuldbundin til þess að hafa ekki kvóta áfram.
Í öðru lagi gerði ég grein fyrir því að ég hafði ekki, kannski ein þingmanna í salnum, kannski ein af mörgum, séð fyrir þá þróun sem varð. Ég hafði ekki séð fyrir að þetta mundi leiða til slíkrar úreldingar sem varð. Ég geri ráð fyrir því að það hafi fleiri en ég vonað að það yrði meiri kvóti til ráðstöfunar og ekki yrði eins mikil pressa á menn að losa sig úr sínum fjárhagskröggum með því að hætta útgerð. Ég sé ekki að það sé neitt því til fyrirstöðu að taka höndum saman um að fækka fiskiskipum, úrelda þau en leyfa jafnframt ef mögulegt er þessum verðmætum að nýtast á annan hátt. Það eru til leiðir. Ég gerði grein fyrir því og hefði greinilega átt að hafa lengra mál um að það eru til leiðir til nýtingar slíkra báta, m.a. með því að fara með ferðamenn þar sem ferðaþjónusta er, og hæstv. ráðherra ætti að vita það mætavel, vaxtarbroddur hér og það sem einkum hefur verið tekið til núna í ferðaþjónustu er að við höfum nóga gistingu, nóg af veitingahúsum en okkur vantar afþreyingu. Okkur vantar það að geta haft ofan af fyrir því fólki sem kemur hingað hugsanlega í annað eða þriðja sinn.