Framleiðsla og sala á búvörum

52. fundur
Fimmtudaginn 08. desember 1994, kl. 11:39:48 (2391)


[11:39]
     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Engan hávaða hef ég haft í frammi um þetta mál. Ég undraðist hins vegar þessa málsmeðferð. Það var hæstv. ráðherra sem upphaflega kom með allnokkrum þjósti og óskaði þess án skýringa að þessari brtt. yrði frestað til 3. umr. Nú hafa menn rætt málið og komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé fullkomlega ástæðulaust og ég skil hæstv. ráðherra svo að málið fari einfaldlega í gegnum atkvæðagreiðslu á hinu háa Alþingi og þá er þetta mál leyst eins og vera ber í málefnalegum umræðum. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að sjá að sér og samþykkja það að þetta mál gangi ósköp einfaldlega til atkvæða eins og vera ber.